wondering about all the things that i'll never understand. there are some things that you can't know unless you've been there, but oh how far we could go if we started to share. i don't need to tell you what it is about, you just start on the inside and work your way out. -Ani Difranco

þriðjudagur, nóvember 14, 2006

athuga 

why bother.. really
Thelma rokkar

þriðjudagur, júlí 26, 2005

flettið niður bilið... 

já sei sei
haldiði ekki að það sé ekki bara komin tími á nýtt líf og meiri kraft!!

nenni ekki þessu væli engur.
farið á www.blog.central.is/valaomars

takk fyrir margar góðar stundir
heyrumst á nýju bloggi.....

Valan ykkar
Thelma rokkar

þriðjudagur, júlí 19, 2005

when you're too in love to let it go.. 

jæja ljúflingar...
hvað er að gerast?
við kiðlingarnir fórum til geitamömmu á fimmtudaginn.

jebbs...
við Auðunn fórum norður á fimmtudaginn til Hildu snildu og Stebba jaaaak;)

það var "koddífíling þema" þetta árið og stemmarinn eftir því.
við Auðunn lögðum af stað með sveitaglottið snemma á fimmtudag og sötruðum svo bjór alla helgina út í garði, upp í gamla, on í gjótu og inn í húsi...
grilluðum og lékum okkur við töffara parið sem eiga nú aldeilis eftir að eignast bjútíbollu krakka með gítar límdann við sig einn daginn.

við lögðum svo af stað heim á sunnudagskveldi og lékum okkur í allskyns leikjum sem okkur einum er lagið...
ég er sko skemmtilegur leikari þegar ég fæ tækifæri til:)

en nú er borgarlífið byrjað aftur
úllalla....
Auðunn vinnur eins og vitlaus maður
og ég kenni fólki að sprikla í Baðhúsinu þegar fólkið nennir að vera inni

í dag vilja flestir leika sér úti svo ég sit út á svölunum með bók og cranberries djús

ég er annars bara að pæla að búa til nýtt blogg...
er þetta bil ekki rugl eða hvað??
humm??
sja.....
Thelma rokkar

sunnudagur, júlí 10, 2005

sunnudagsþynnka 

..án Manna

það er leiðilegt.. ég vil leika við manninn minn í þynnkunni
til hvers að standa í þessu annars??
ég hef ekki þurft að þrauka þynnkuna ein síðan ég bjó í New york

en hann er svo duglegur
er að vinna eins og mófó og svo getum við keyrt norður
fáum 4 daga frí
ég redda tímunum í Baðhúsinu og Auðunn fær langt frí vegna dugnaðar.

en helgin var æði
ó já.. alveg mögnuð takk fyrir

á föstudaginn höfðum við stelpurnar spa-kvöld hjá Evu..
veitti ekki af þar sem ég hef lítið nennt að hugsa um útlitið og er alltaf eins og reitt hæna,
ætla að fara fara betur með mig núna.. jafnvel kaupa maska... úúúú
ég hef aldrei átt maska
en nú vil ég fara að verða sæt

svo á laugardagsmorgni sótti Bryndís mig og við skutluðumst með fullt af spennum í hári a la Vera MH style
hittumst allar saumó heima hjá Söru og skutluðumst svo til Veru með morgunmat og bús.
ástæða: gæsaparty
allur dagurinn var svo snilld!!!
mikið hlegið og mikið um prakkaraskap
ég er með harðsperrur í kinnunum og maganum og ég er hás eftir píkuöskrin
(mikið um öskur skal ég segja ykkur.. sérstaklega undir lokin;)
Vera fekk nebblega mjög svo fyndið show sem fékk okkur hinar til að kafna úr hlátri.
þetta var mangað

en núna er ég með smá haus- og augnaverk
vúbbídú
garagó
ble
Thelma rokkar

þriðjudagur, júlí 05, 2005

the phone is off 

the music on

nei ég ætla ekki á Snoop
nei ég ætla ekki á Foo Fighters
nei ég fór ekki á Duran duran

en hins vegar ætla ég að sjá Emelíönu þegar hún kemur til landsins

jebbs.. it´s official
ég er krúsídúlla sem stend ekki í þessum látum lengur.

spámaðurinn sagði mér að vera bjartsýn
enda er ég með jákvæðni að vopni í gegnum dagana
þessa daga
enda bara jákvæðir dagar framundan og lífið ljúfara en tónarnir sem hljóma um íbúðina
(Emelíana og Mugison skiptast á að halda athygli minni)

já krakkar..
ég var að klára þriðja tómatinn minn í þessum töluðum orðum.
fer seint í Baðhúsið í dag og hafði því tíma til að dansa inní stofu og fara í Karen Miller með mömmu minni til að kaupa fallegann kjól
(maður þarf að vera smekklegur í öllum þessum brúðkaupum og veislum)
ég held líka að mamma sé komin með nóg af götóttu outfittunum mínum.. enda hef ég ekki keypt flík í tæpt ár.. ekki einu sinni sokka;)
jebbs.. það sem ég á er þá helst sjúskaðir bolir og peysur úr mörkuðum síðan ég bjó í New York.
í kringluna hef ég lítið farið síðustu árin
en í dag var undantekning og núna er ég prinsessa

jæja..
best að fara kenna og pína Eddu og Guðbjörgu í Baðhúsinu

ástarkveðjur til allra sem brosa í dag:)
bless
Thelma rokkar

mánudagur, júlí 04, 2005

hver kann að laga þetta ljóta bil? 

Thelma rokkar

Make Poverty History 

.
enn einn mánudagurinn
helgin var róleg thank god
og gott að vera ekki þreytt í dag
sund og grill..
that´s all

ég og Manni horfðum eitthvað á Live8 og spörkuðum í hvort annað yfir að hafa ekki beðið með það að fara heim og getað því tekið þátt í samkomunni í Hyde Park og ýtt á kallana 8 í að fella niður skuldir í fátækustu löndunum í Afríku
enda eins og Bobbi og co segja:
we don´t want your money.. we want you
en það eru fleiri leiðir til að sýna stuðning
til dæmis með því að sæna sig á listann
www.live8live.com
drífið ykkur í því
kallarnir hittast á miðvikudaginn!!!

það hefði líka verið skemmtilegt að sjá allar stjörnurnar live..
Maddy, Chris, Bobbi (ég kalla Geldov snillinginn Bobbi;) og fleiri góðir
Auðunn og co. úr Concern Worldwide hafa líka verið að vinna í að meika poverty history og því var orðinn soltið mikill spenningur fyrir þennann viðburð, og ætluðum við því alls ekki að missa af þessu.. en þá er bara að sýna stuðning á annann hátt
enda ættum við ríku spilltu íslendingar að geta gefið smá í hattinn.

en annars hef ég í rauninni ekkert að segja..
er eiginlega bara í rólegheitafíling
núna langar mig bara að fara í sumarbústað
slökkva á símanum og labba upp fjall
er ekki hægt að gera eitthvað svoleiðis??

við Auðunn ætlum að fara til Hildu og co á Húsavík 14. júní
og keyra eitthvað út í bláinn og fara svo í gjánna
og leika okkur í víðáttunni
svo langar okkur líka til útlanda
alvöru útlanda
ekki New York eða London

sjáum til hvað gerist í lífinu
sjáum til hvað gerist...

ég er allavega farin aftur upp í hið magnaða Baðhús
ble..........
Thelma rokkar

fimmtudagur, júní 30, 2005

and the only thing you can think of.. 

is me waiting for you
by the window
with the brightest red lipstick on my lips

komin heim frá stuttri Londonferð
mætti á svæðið á mánudagskvöld
fór snemma að sofa því þriðjudagurinn var stór og krefjandi
eftir langann þriðjudag kíkti ég út með bakpokann minn og þreytuleg augu,
fékk mér nokkra bjóra og rauðvín í miklu spennufalli
lenti í einhverju "eftirpartýi" með wannabe listafólki
analæsingar, hlátur, söngur og væl alla nóttina
svaf ekkert þá nótt
fór beint úr partýinu næsta morgunn upp á flugvöll
átti ógeðslega flugferð heim
(það er magnað að láta renna af sér í litlum icelandexpress flugvélum)
Auðunn sótti mig og við lágum í rúminu í hálfann sólarhring.
núna er ég loksins tilbúin til þess að byrja aftur á íslenskum hverdagsleika, tók London símakortið úr símanum og setti það íslenska í svo núna geta allir sem eru það merkilegir að þeir hafa númerið mitt náð í mig.
fer upp í Baðhús á eftir
og halelúja..
ég ætla að taka það rólega um helgina

heyrumst snúlls
Thelma rokkar

mánudagur, júní 27, 2005

you used to think that it´s so easy.. 

klukkan er 10
það er mánudagur og ég er að drekka morgunkaffið mitt og lesa blöðin.
ég fer til London á eftir.
ég er eitthvað skrítin.. þreytt og með kvíðahnút
ég kann ekki að vera ég allar stundir
skiljiði hvað ég a við?
stundum þá er ég fyrir utan sjálfa mig og næ ekki að upplifa stundirnar sem líða.

þegar ég lendi í kvöld þá fer ég beint til Ryan sem verður í companyinu okkar og ég býst við að ég fari bara beint að sofa því ég þarf að vakna svo snemma á morgunn.
ég gæti vel hugsað mér að bara sofa í nokkra daga
er held ég bara ennþá smá þunn síðan um helgina
laugardagurinn var mjög skemmtilegur.
en sunnudagurinn ekki eins.. eða jújú.. við Auðunn eigum alltaf ágætis whitetrash þynnkudaga.

svo á morgunn þarf ég að fara í skemmtilega leikprufu
svo hitti ég vonandi flesta listamennina sem verða í companyinu
svo fer ég heim strax á miðvikudaginn
haleluja..
ég nenni ekki að stoppa lengi

jæja.. ætla að stökkva í sturtu og hressa mig við
þetta slen gengur ekki
á líka eftir að stökkva í bankann til að kaupa pundin

ég sé ykkur á miðvikudaginn
ble ble
Thelma rokkar

miðvikudagur, júní 22, 2005

and now you´re coming home 

(and I´m trying to move on)
.
ég er svona ofvirk í þessu bloggi já.
en það er svona þegar það er þoka alla daga
ekki útaf veðri heldur hausverk
já það er alltaf skýjað hjá mér.

ég hef heldur bara ekkert að segja
rosaleg lægð í gangi
en svoleiðis er júní oft hjá mér
hlakka til að klára þennann kafla
sagði það við Auðunn og honum fannst ég þá alveg komin yfir strikið og prikið og allt það í lífsflóttanum og kaflaskiptingunum
hann togaði mig bara í sund og keypti ís handa mér

ég er í gati...
var í baðhúsinu í morgunn og er að fara þangað aftur á eftir
en þangað til ætla ég að lesa blaðið hans pabba og drekka kaffi

ég er svo þreytt að það er eins og ég sé undir jörðinni og sama hversu marga kaffibolla ég drekk þá kemst ég ekki upp..
ég sakna New York..
London er prump I have to say
neinei.. hún er fín
er svona Reykjavík í öðru veldi
vantar bara karakterinn í hana
Auðunn er búinn að semja við mig að taka framhaldsnámið í New York
ég sakna New York og sjálfs míns

ég er þreytt og ætla að fá mér meira kaffi
(ef þið fréttið af mér upp á spítala þá er það bara útaf magasári)

ég fer til London á mánudaginn og ég hlakka ekkert til
það verður stutt stopp
og svo ætlum við Auddi pauddi til Húsavíkur
ég hins vegar hlakka til þess
mig langar í sveitina
ég er komin með ógeð af gráum hröðum ljótum borgum

æjji ég á ekki að vera að skrifa núna
Thelma rokkar

fimmtudagur, júní 16, 2005

I want to take long, cool drink from your bucket 

.
to every thought i could say now, i say fuck it
i just want to go with how i feel
like my only job here is to care for and cover you, dear
(-ani difranco)

ég er komin í langt helgarfrí
sem er gott fyrir líkamann því ég kenndi soltið marga tíma í gær plús dansaði í götum

Jói nuddari í Baðhúsinu tók mig svo í nudd eftir alla tímana því honum leist ekkert á mig
ég leit svo ílla út eitthvað:/
humm.. magnað

men hvað það var nú samt gott
en hann benti mér á að öll streitan og stressið væri í hausnum og augunum og ætlar að bjóða mér aftur í nudd.. vill ná þessu sulli úr mér

við erum svo að fara í úti brúðkaup á morgunn hjá fallegu krökkunum, Söru og Hemma
það verður magnað!!
ég er bara með smá fiðring fyrir þeirra hönd
hamingja er alltaf góð:)

annars ætla ég bara að fara að lesa núna út á svölum og skrifa hugmyndir fyrir dans leikhús companýið mitt sem við ætlum að byrja að skipuleggja í lok júní þegar ég kíki yfir til London.
er búin að panta farið á rúm 20 þús en fékk svo sent frá icelandexpress tilboð á fjórum sinnum lærra verði!!
alltaf gaman að þessu

jæja.. þýðir ekki að væla yfir því..
er að huxa um að setjast út með léttann bjór svona til tilbreytingar
fara í banka og kannski sund
kíkja svo í hafnarfjarðarleikhúsið í kvöld með manninum mínum sem verður þá líka kominn í langt helgarfrí og svo bara gleðilegann 17.júní börnin mín góð:)
halelúja!!

bless í dag
Thelma rokkar

þriðjudagur, júní 14, 2005

You wanna be ruled.. 

You wanna be fooled

You wanna be a woman like a man like a, like a, like a
Woman like a man, like a man, like a woman like a man, like a man

(I'll get a cheaper ticket next time)

vaknaði
labbaði niður laugarveginn
gegnum gamla vesturbæinn
fór í bankann
fór í kaffi á grandaveginum

þarf að stinga hausnum í samband núna
ég vildi að ég væri tónlistarmaður
gæti notað eitthvað annað en mig
jafnvel harmonikku
eða orgel
allavega ekki mig
líkaminn er í uppreisn
og kollurinn sofandi

æjji það er svo magnað veður og ég þarf ekkert að kenna í dag
huggulegt ég veit
ég ætla að fara að kaupa bikiní

ég hlakka til einhvers sem ég veit ekki hvað er

ég leyfi bara Damien að enda þetta með ákveðnum æsingi..
You wanna be rich
You wanna be kitsch
You wanna be the bastard of yourself
You wanna get burned
You wanna get turned
You wanna get fucked inside out
Thelma rokkar

mánudagur, júní 13, 2005

.. og helgin er búin 

.
aftur

eftir skemmtilega vinnuviku kom hin langþráða helgi
aaahhh..
frí og bara ágætis veður
föstudagskvöldið var nú bara rólegt hjá okkur gamlingjunum
bæði búin að vinnu um 8 leitið og fengum okkur því bara pizzu og bjór vidjó og ís og allt það
(maður þarf að bæta upp orkutapið þegar maður er búinn að kenna 5 tíma)
jájá.. bara þreyta og nudd

svo á laugardeginum fór ég í 2 útskriftarveislur hjá proffa vinunum mínum úr saumó
þær eru svo miklir snillingar.. Birna var að klára tölvufræðina í HR og Ágústa röntgenfræðina
(ég held það heiti eitthvað solleiðis)
en það er ákkúrat eitthvað sem ég myndi brillera í
humm...???
nei

en já það var nú bara fínerís stemmning og gaman að hitta loksins saumókvensurnar mínar úr MH
við Auðunn fórum svo bara snemma heim enda eitthvað of mikið að sýna okkur í hófseminni þessa dagana
Auðunn þurfti líka að fara vinna næsta dag og ég fór þá bara að leika við þær mæðgur Hildu og Emelíönu.. þær voru nefnilega staddar í Reykjavík þessa helgina því þær voru að fara til Finnlands í frí í morgunn

við átum allar á okkur gat á kaffihúsum og svo í kaffi og vöfflur á grandaveginum

Auðunn kom svo og sótti okkur og við fórum öll í heimsókn til Palla
við hjónin enduðum svo kvöldið auðvitað á vídjó fyrir svefninn og nú er kominn mánudagur.
ég er í gati
kenndi jóga, námskeið og Eddu sif í morgunn
fór bara með hana Eddu út á svalir.. hún er sko alveg að gera góða hluti stelpan
ég fer svo aftur í Baðhúsið á eftir

já þetta er allt svo merkilegt og sniðugt krakkar mínir

ég hins vegar tel bara niður dagana núna í 17.júní því þá eru þau Sara og Hemmi að fara að gifta sig á þá verður sko kátt í koti skal ég segja ykkur

allavega...
skemmtilega hresst og tilgangslaust blogg
sveimérþá

bless
Thelma rokkar

miðvikudagur, júní 08, 2005

miðvikudagurinn mikli 

.
það er svo magnaður dagur í dag
jesús!!
ekkert smá gaman að vera ég í stórborginni Reykjavík

ég er svöng
klukkan er hálf tólf og ég var að koma úr Baðhúsinu.
kenndi tvo tíma, námskeið og jóga og tók svo dansæfingu

Auðunn sótti mig og núna ætla ég að fá mér morgunkaffið mitt.
te er ekki fyrir íslendinga

svo fer ég aftur í Baðhúsið og svo borðum við Auðunn örugglega á Hrefnugötunni frekar en á Grandaveginum og svo horfum við örugglega á vídjó eða eitthvað álíka spennandi.
langar samt meira á kaffihús í eitt eða tvö rauðvínsglös en held að þessi vika verði vínlaus með engu... og held ég bara áhrifalaus án kæruleysis og allar þær tilgangslausu stefnur verða teknar án vafa

ég er farin að fá mér late breakfast eða eins og við New Yorkerarnir kölluðum það
brunch
;)

ble
Thelma rokkar

þriðjudagur, júní 07, 2005

þriðjudagur og þræta 

.
æjji ég var ákkúrat að fara blogga í þessu rólega næði sem ég hafði.
þá kemur Auðunn Lár inn eins og stormur
"eigum við að fara koma okkur eða?"
æsingur æsingur

erum að fara í litla þrekhúsið
ég þarf að nota salinn þar til að semja dans fyrir leikdans masterinn sem ég er mikið farin að spá í að taka. gott að nota allt speisið sem ég fæ að nota í baðhúsinu og þrekhúsinu.
því að leiga stúdeó í London er dýrt
nota tímann
gera eitthvað af viti meðan ég er hér........

annars er ég strax komin með leið á að vera hérna í Reykjavík
hef lítið djammað og fáa hitt
neinei.. hef eitthvað hitt nesgellurnar
en ekkert saumó...
vantar líka bara símanúmerin ykkar flestra
(svona er þetta þegar maður þarf alltaf að skipta um símakort á milli landa)

en annars vonandi hitti ég ykkur allar á fimmtudaginn
og stel þá númerunum sem mig vantar.
er reyndar að fara á dansleikhússýningu fyrst
(það var mikið að íslendingar séu að verða virkir í að sameina dansinn og leikinn í eitt)
verður mjög forvitanlegt
hef samt frétt að það sé lítið um dansara, aðallega leikarar sem unnu í verkunum
svo tæknin verður örugglega ekki mikil
en það er bara gaman
enda finnst mér dansleikhúsverk yfirleitt skemmtilegri en tæknileg dansverk
en það er annars allur gangur á þessu

en allavega..
það er þriðjudagur og ég ætla að fara á æfingu
skipuleggja svo jógatímann sem ég kenni í fyrramálið
og reyni að semja eitthvað bull inn í sal
(er samt að kafna úr hugmyndaleysi)

tala við ykkur á morgunn
ble
Thelma rokkar

mánudagur, júní 06, 2005

mánudagur í móki 

vaknaði klukkan 5:30
Eva sótti mig því hún þurfti að opna Baðhúsið.
ég kenndi svo tvo tíma
námskeið og jóga/pilates
Auðunn sótti mig í Baðhúsið
ég fekk mér kaffi og brauð.
núna er Auðunn að slá garðinn
ég er þreytt
þarf svo að fara aftur upp í Baðhús á eftir
kenna annað námskeið
það er hauslegt veður
engin sól
mig langar á kaffihús
en nenni ekki að standa upp úr stólnum
ég þarf að fara panta mér far til London því ég þarf að skjótast þangað eftir rúmar 2 vikur.
eina sem ég nenni að kenna er jóga
hitt er of mikið hopp og vesen
ég þarf að fara að redda skólamálunum
ég þarf að fara að æfa fyrir prufu
ég þarf að fara að uppgötva hvað ég vil fókusera á í masternum.
ég þarf að fara græða pening.
ég þarf að fara koma mér í betra form.
ég þarf að fara fyrr að sofa
glætan að ég fari fyrr að sofa.
mér heyrist Auðunn vera að gefast upp á að slá
vélin biluð
meira kaffi??

ég tala við ykkur seinna
Thelma rokkar

laugardagur, júní 04, 2005

"þú ert bara svo mikið þú" 

.
við hjónin kíktum út í gær
gaman að fara bara snemma í bæinn
heyriði.. það er magnað að vera bara hálf edrú þegar fólk er á rassgatinu
ég man allt og enginn neitt

það sem ég fékk að heyra
já elskurnar
ég er stundum "of mikið ég"
jájá
en svo er ég líka svona mögnuð að feimna fólkið opnar sig og játar ást sína á mér
haha.. fyndið hvað íslendinar eru opið og skemmtilegt fólk

jiminn
er að huxa um að segja ekkert hér það sem sumir sögðu mér um mig og hvað þeim finnst um mig.
enda ekkert sem skiptir máli því fólk er fullt og fínt og fallegt
en eitt:
er ég "þú veist svona eins og þú ert"
er ég athyglissjúk?
já kannski
er erfitt að komast yfir mig?
humm??
er ég of mikið ég?
fólk er fyndið
sumir segja bara eitthvað til að halda uppi samræðum
hlýtur að vera
og fyndið líka að heyra slúður um mann þegar maður býr ekki einu sinni hérna
fokk that
en ég meina hey! fólk þarf að tala um eitthvað

maður ætti kannski að halda þessu áfram
vera bara rauðvíns léttur og muna allt sem allir segja við mann;)
það getur verið fyndið

minnið mitt
núna ætla ég að fara muna
það verður skemmtileg tilbreyting

hey Eva er að panta pizzu handa okkur Audda því við eigum ekki símainneign
svo er það bara vídjókúr í dag
því sumir eru þunnir
en ekki ég;)

jæja elskurnar
veriði þið og ekkert kjaftæði
því hver annar er það þá?
ég myndi allavega ekki vilja að einhver annar væri meira eins og ég en ég

ble......................
Thelma rokkar

fimmtudagur, júní 02, 2005

ég á hvergi... 

hvergi
hvergi
hvergi heima

HVERGI!!!!!!

í alvöru.
hugsaðu þér lesandi góður
hugsaður þér að vera í New York
borg lífsins
borg tækifæranna
borgin sem aldrei sefur
borg alls.

ímyndaðu þér að vera þar sem allt er
en enginn er

hugsaðu hvað borgin er mögnuð
og þetta er staðurinn þinn
NEMA!!!
nema þú saknar allra
þér finnst allt vera frekar tómlegt
því þig langar að deila lífinu, æsingnum, spenninginum,
öllu
með vinunum og fjölskyldunni þinni með þér.
því allt er ekkert án aðra.

svo hitturu alla
alla sem þú vildir deila með hlutunum
en þú ert á röngum stað

þá áttu hvergi heima
og ekkert skiptir máli

er skrítið að ég sé orðin löt og pirruð??
ég á bara hvergi fokkin heima

annars bara fínn dagur
og hlakka til að upplifa annann svona dag

humm............??????????????
Thelma rokkar

miðvikudagur, júní 01, 2005

Coffee is pouring out my ears 

it’s the only thing they have in here

mig langar í útilegu
eða nei.. ekki sofa í tjaldi
frekar í sumarbústað
mig vantar bara eitthvað annað en þetta eilífa borgarlíf.
komin með leið á því
komin með leið á mörgu

en ég á örugglega ekki eftir að kaupa mér aftur bíl.
ekki fyrr en við flytjum til LA eða eitthvað
(ef við nennum því einhvern daginn)
þegar ég bjó á Íslandi þá hélt ég að maður YRÐI að hafa bíl
og ég keypti mér meira segja bíl þegar ég kom heim eitt sinn í smá pásu frá námi,
bara af því að það er ekkert underground í Reykjavík
fokk underground
það gerir mann þunglyndann..
þú sérð ekkert og hefur ekki tilfinningu fyrir lífinu og veðrinu.
af hverju ekki að hjóla eða labba?
var ég svona gömul og lúin í gamla daga?
eða liggur mér bara ekkert á lengur?

Auðunn er að reka á eftir mér
hvað liggur á??

mig langar að búa í litlu sjávarþorpi í dag
búa upp á hól í litlu rauðu húsi
og labba niður að höfninni þar sem ég heyri í Mávunum
og fá mér kaffi í rólegheitunum
aaahhhh..

ég þarf breytingu
alltaf þarf maður að flýja

fór á kaffiús með Evu minni í gær
hittum stelpu sem við þekkjum sem heitir líka Eva og hún er sennilegast að fara ferðast um alla suður Ameríku í hálft ár.. ein.. bara ævintýrast
sjitt hvað það er spennandi

okkur Auðunn langar geðveikt að ferðast um Afríku
ég vil bara upplifa eitthvað nýtt
mér leiðist þetta "stórborgara, verð að eignast allt, hús bíll og halelúja" líf

það hlýtur að vera meira til en Hollywood Reykjavík??
við erum svo mikil krútt I guess
íslendingar that is
eltumst við að eignast sem mest áður en við vitum í rauninni hver við erum og hvernig vitum við hvað við viljum áður en við vitum hvað fleira er out there??

æjji nú er ég byrjuð að vera með leiðindi og ég ætla að stoppa mig af right now.
enda er þetta all good I guess

nenni bara engum rembing
það er það eina

jæja Auðunn er að bíða
ætlum að labba í þrekhúsið
ég held að ég þurfi að rifja eitthvað upp
byrja að vinna í Baðhúsinu á mánudaginn
(hef ekki farið í svona heilsurækt í ca 2 ár)
ef ég geri eitthvað annað en að dansa þá er það bara jóga og pilates
(þjálfararnir hlæja bara af mér þegar ég segi að ég hreyfi mig innan frá en ekki utan frá)

jájá Vala.. mjög geðveikt eitthvað
kenndu bara og ekkert væl

núna þarf ég peninga
ekki að eltast við að vera sjálfum mér samkvæm
stundum þarf maður bara að slökkva á kollinum og gera það sem þarf að gera

kannski seinna geri ég það sem ég vil og skil og trúi á

núna ætla ég að labba niður laugaveginn og svo í gegnum gamla vesturbæinn með Audda mínum og svo borða heitann mat og hitta svo nes vinkonurnar mínar á kaffihúsi

svo kemur nýr dagur

by the way.. komin með íslenskt símanúmer
6596625
Thelma rokkar

sunnudagur, maí 29, 2005

I laugh out loud my life´s a mess 

I´ve gone too far in my lifelessness

vorum að koma inn úr "sólinni"
dagurinn er búinn að einkennast af kaffi og kaffihúsarferð.
kíktum á vegamót (klisja.. en kósí)
ég keypti mér stílabók
því skruddan góða er búin.
samdi helminginn af atriði sem þarf að vera tilbúið fyrir prufuna í lok júní.
en svo sá ég að það var ekkert cool
svo ég lokaði bókinni og hlustaði á Auðunn lesa upp úr einhverju íslensku slúðurblaði.

magnað
ég er núna að reyna að finna tilganginn í tilgangsleysinu.
ég veit hann er einhver

ætluðum að kíkja til þín Eva
fórum fyrst á kaffihúsið sem þíð voruð á og svo heim til þín, en fundum þig ekki
(eigum ekki inneign)

þegar við förum aftur til London þá ætlum við ekki að búa í kommúnum eða að hoppa á milli sófa.
við verðum að fara finna stað sem við getum kallað home
ég verð að fara skjóta niður rótum einhvers staðar
ég vil finna fyrir einhverju öðru en ást, klikkun, sköpunarþörf og tjáningarþörf.
mig langar að finna fyrir staðfestu
fyrir rótum
(tala ég alltaf um þetta þegar ég kem til íslands??)
kannski
og kannski er það bara gott

mér líður eins og ég sé púsluspil
og ég er hrædd við að púsla því saman
því þá er leytinni lokið
og allt fullkomið

mér líður eins og ég sé fugl
en einu sinni var ég tré
svo pakkaði ég niður í tösku og flaug burt.
núna kemst ég ekki aftur niður

Auðunn er að kaupa einhverjar hnetur í salatið
og ég er að drekka stellu

á morgunn byrjar leytin
ég ætla að tékka á bókum (sjitt ég skilaði ekki bókunum á bókasafnið í London.. skuldin verður orðin skemmtileg þegar ég kem út aftur)
við geymdum fullt af drasli í vinnunni hans Audda
samt vorum við með yfirvigt
á morgunn byrjar leytin á íslandi
ætla að semja og æfa atriði í einhverjum sal í húsunum
ég ætla að tékka á vinnu eða atvinnuleysisbótum
því það er svo lítið að gera í Baðhúsinu á sumrin
ég ætla að hringja í skólann úti og láta Ryan vita að ég sé flúin til íslands.
ég ætla að finna símakortið mitt og láta ykkur vita númerið mitt

því ég er alveg farin að kreifa að heyra í ykkur.
einu sem vita að ég sé komin eru Eva, Ingunn og Hilda

muniði þegar ég var einu sinni alltaf með niðurtalningu í heimför?
og helst með "ég er komin heim" partý.
er ég orðin svona róleg??

veriði óhrædd við að heilsa upp á mig
ég er hætt að bíta
Thelma rokkar

home alone and happy 

nothing brings me down

er reyndar ekki ein
Auðunn að fara slá garðinn og ég sit í rauða kínasloppnum mínum sem aldrei deyr og sötra gott íslenskt kaffi
eða er það íslenskt?
það veit ég ekki

djöfull er ég sljó að pikka á íslenskt lyklaborð
en magnað að geta notað ð og æ og allt það

jájá
sunnudagur og engin þynka
fórum í stúdentsveislu á föstudaginn til frænku Auðuns en svo meikaði ég ekki bæinn því ég er orðin svo mikill aumingi í svona drykkju (er meira bara í bjórnum í London)
en svo þegar maður þarf að taka aftur þátt í íslenskri drykkjarmenningu þá ræður maður ekkert við það
fór heim að sofa upp úr miðnætti:/
who have I become??!!
Hilda frænka hringdi í mig um eittleytið og ég sagði henni að ég væri á leiðinni norður með þrjá kodda (???!!!) hún bara hló og fínt litla mín farðu að sofa í kollinn á þér

það er sól já
erum að hugsa um að skreppa í sund
nema ég á ekki sundföt því hvenær fer ég í sund?
það eru ekki sundlaugar í New York né London svo ég býst við að ég hafi ekki farið í sund í ca 3 ár..
eða hvað?? man ekki

það er allt eitthvað svo skrítið
ég er svo mikill fugl
ég veit ekki hvar ég á að byrja
eða á hverju ég á að byrja

Auðunn er að hella upp á meira kaffi
kannski ég nái að hugsa skírar
ég ætla út með bollann og stara fram fyrir mig
draga inn eitur og hlusta á Fishermans´wife
kannski fatta ég eitthvað
næ jafnvel að uppgötva hvað ég þarf að gera til að púsla mér saman í fullnægða manneskju

eða ekki
og hvað um það?

ég er farin út í garð
Thelma rokkar

fimmtudagur, maí 26, 2005

while the rich is getting richer.. 

the poor is getting poorer

ég er komin heim
til Íslands that is

við áttum skrítna daga síðustu vikuna
sváfum inni í stofu hjá góðu fólki
flestir skandinavískir þar á ferð
leikarar og leikhúsfræðifólk
sem leyfðu okkur að gista hjá þeim þegar við misstum herbergið í kommúnunni
sem við bjuggum í um daginn.

svo í fyrradag datt mér allt í einu í hug að skreppa til Essex til að tékka á skóla
(ég vissi ekki að hann væri þar en var mjög forvitin)

við svindluðum okkur um borð í lest
(tímum ekki að borga fyrir overground lest þegar við erum búin að eyða nóg í underground)

á leiðinni þangað fengum við svo sorglegar fréttir um að Garðar afi Auðuns hafi látist um nóttina.
hann var yndislegur maður og þegar ég hitti hann um jólin þá gat ég ímyndað mér hvernig Auðunn verður þegar hann verður góðlegur afi.

við stukkum útur lestinni þegar
en tókum svo eftir að við höfðum gleymt töskunni (í þetta sinn var það ekki ég)
þurftum svo að fara í 2gja klukkustundaferðalag út fyrir London til þess að komast á endastöðina til að ná í töskuna
fengum hana en einhver hálfviti var búinn að stela ferðageislaspilaranum mínum.
svo var tveggjaklukkustundaferðalag heim líka
fórum heim
pökkuðum
tókum næsta flug til Íslands
og hér er ég

verðum heima í allt sumar
nema ég þarf að stökkva til London í eina prufu í lok júní

sé ykkur elskurnar
ég kem með símanúmerið mitt á eftir eða á morgunn

farið vel með ykkur
Thelma rokkar

föstudagur, maí 20, 2005

and so it is.. 

just like you said id would be

okei eg er ekki haett ad dansa
er reyndar ad fara upp i studeo nuna til ad semja lyrical dans
med gamla vininum minum Damion Rice

eftir omurlegann gaerdag
ta kom loksins hugmyndin.
(sko eg sagdi ad madur tarf ad brjota sig nidur til ad byggja upp!!)
greyid Leo medleigandi vissi ekkert um hvad eg var ad tala tegar eg kom fljugandi utur herberginu med snilldarhugmynd fyrir atridid sem eg er ad vinna i
aaahh....
lettir

halftima seinna kom svo Audunn med peninga i vasanum!!
orlof.

kinverskur og bjor takk.

erum svo ad fara flytja inna adra krakka a sunnudaginn..
tar er vist lika fjor
eg held tau seu 7 krakkar (verdur soltid trodid)
flestir leikara
en eg meina hverjir eru ekki leikarar eda greenpeacehippar i London??
jesus

eitt fyndid
tad eru alltaf einhverjir ad taka profid herna til hlidar og gefa audvitad ekkert upp nafn.
en tau geta alltaf gert fullt rett.. eins i hvernig nami eg er i og hvernig augun min eru og svoleidis
en svo halda tau ad eg by ennta i New York (???)

eg by sko nuna i London
(bara svona til ad upplysa okunnugann)

eg hef fengid orugglega 10 sendingar um ad einhver ss@ssss
eda einhver mm@mmm
eda eitthvad alika, hafi tekid profid og vita tau alltaf tad helsta en ekki hvar eg by
svo greinilega er tetta ekki einhver af ykkur kaeru vinir
(tvi eg vona ad tid vitid hvar eg by..??)

aejji eg veit ekki.. fannst tetta bara fyndid
var nefnilega ad fa svor til baka akkurat nuna

okei ykkur finnst tetta bradsnidugt einmitt

eg er ta bara farin ad leika vid Damien

verid svo ekki svona rosalega opin og skemmtileg a kommentinu:/
eg raed ekkert vid ykkur..
Thelma rokkar

fimmtudagur, maí 19, 2005

it's making me feel ill and weak and sick.. 

.
Tegar madur er kominn med sjalfan sig a stillingu nullsins
Eru ta ekki bara bjartir timar framundann??
Engar vaentingar
Engu ad tapa
Ekkert ad sanna
Ekkert basicly

Er tad ekki bara best?
Stilla sig a null
Hafa ekkert alit a sjalfum ser ne lifinu
og breida saenginni yfir sig??

hell ye!!

crazyness i gangi og eg er komin aftur a netid..
eg hlusta yfirleitt a Amosinn eda Radiohausinn eda Difrancogelluna tegar eg aetla ad skapa eitthvad.
tegar eg tarf ad fa hugmyndir.
i dag??
hugmyndir??

Eru einhverjar???
Neibbs
eg sem tarf ad vera buin ad semja atridid fyrir morgunn daginn svo eg geti neglt tad i studeoinu.
fokk it

Enginn nennir ad tala vid mig a msn inu
Og ta babla eg bara herna vid sjalfa mig tvi eg a halftima eftir a netkaffinu

Fann samt studio adan sem eg get fengid ad nota eitthvad
good thing my man

en nuna a eg ad vera ad semja..
dugnadur??
nei.

Leti
Auli
Heimsk og ljot

Snilldar dagur i dag ha??
Thelma rokkar

words are flowing out like endless rain into a paper cup 

.
ja kaeru vinir!!
eg tok storu akvordunina loksins:
eg aetla ad haetta ad dansa og syngja

eg er aetla ad einbeita mer 100% ad leiklistinni.
haleluja!!
(dansinn og songurinn verda bara svona ahugamal eda eitthvad)
jebb..lettir
(okei ju kannski tek eg contemporary danstima svona til ad halda heilsunni (ged og likama))

en allavega
eg vard bara ad taka akvordun..
hvad er eg ad gera??
hvert stefni eg??
af hverju ad gera allt i einu??
focus vala!!

tannig ad naesta haust verd eg bara i leiklist
og vinna i leik-companyinu
og troda mer i independence myndir
og trodast i prufur og allt tad
snilld.. lettir.. aahhh..

focus is the word people!!
eg verd bara ad hafa akvedna stefnu
samt..
kannski ekki
fljota bara afram..
kannski enda eg i afriku
einn daginn a Audunn eftir ad draga mig i burtu ur tessum heimi og i sjalfbodavinnu i Afriku.. tad er ekki svo vitlaust
focusera a retta hluti takk.

hittum tennann lika merkilega mann/strak
(hvort er hann strakur eda madur tar sem hann er 30 ara??)
Allavega.. hvort sem er
Hann hefur juju bara svo mikid sem buid ALLS STADAR
Nefndu bara stadina i heiminum sem hann hafdi ekki skemmtilegar eda ognvekjandi sogur til ad segja fra.
Hann er stand up comic og performer kannski a islandi i sumar.
Hann var i heimsokn i kommununni okkar i gaer og je minn hvad mer leid eins og aula i bala tegar eg hlustadi a allt sem hann hafdi ad segja.
Erum vid islendingar ofverndud??

Allavega..
Hann atti erfitt ar med stand uppid sitt
En nuna hringdi BBC i hann og hann er ad gera tad gott utum allt
Innblastur
Stundum gengur vel
Stundum ekki
That's fokkin life

Deal with it woman!!!
(er eg kona eda stelpa?)
Thelma rokkar

miðvikudagur, maí 18, 2005

they stone you when you try to be so good.. 

.
sagdi Bob minn Dylan eitt sinn
aejji bla
eg nenni ekki ad tala

helgin var yndisleg..
lagum bara mest megnis ut i gardi med odyrann bjor og solina i andlitid,
eg meira segja brann a tanum (og eg brenn aldrei!!!)
forum svo a uppahalds stadinn okkar i Notting Hill
yndislegur stadur
med bakgard og goda tonlist
vedrid var a okkar hlid
Audunn fekk langa helgi

nuna tarf eg ad fara upp i skola sem eg aetla kannski ad taka leiklistartima i haust.
aejji fokkin bla..
tarf ad drifa mig...........

vid komum heim eftir 2 vikur

bless
Thelma rokkar

föstudagur, maí 13, 2005

Got poisoned headache but I feel alright 

.
fostudagurinn 13.

eitthvad hippadjamm i kvold
ja alvoru hippar
gaurarnir ur concern eru svo fyndnir..
vid buum adallega med "friends of the earth" folki

ymislegt buid ad ganga a..
strid vid mysnar
buin ad veida 3
fullt eftir I guess

lentum i rifrildi vid "the crazy bitch"
eda Audunn greyid.
tad er eins og hun tori ekki ad rifast vid mig
(tad segja tad nu sumir ad tad se frekar leidilegt ad rifest vid mig..??)
Eg veit ekki.

hun er allavega skotin i annad hvort mer eda Audda
tad hlytur ad vera
hun er sko baejari.. svo vid vitum ekki
hun bara kvartadi yfir latum
eg meina!!!!! (???)
sjitt.. djofulsins kjaftaedi
allir hinir sogdu bara vid okkur ad hun vaeri fokkt opp i kollinum og gafu okkur bjor og vid skaludum an hennar
hehe.. gott a hana (djok)
neinei..
eg er god
eg var ad enda vid ad syna henni ljod um bjartsyni i morgunn tvi hun var ad spurja mig um eitthvad rad um ad stokkva eda hrokkva (hee??)
whatever.. eg bara henti i hana ljodi sem segir basicly ad hlutirnir geta svo sem alveg gengid upp
eitthvad bla
(eg veit ekki hvort hun skildi tad.. juju andskotinn)
en eg meina synir madur ovini sinum cool ljod??
nei.
enda er tetta agaetis kind greyid

hun allavega fekk innblastur
(eda shit.. kannski bara ordin meira skotin i mer?? :/

aejji eg er bara ad bulla eitthvad..
tid turfid ekkert ad lesa
er bara ad huxa upphatt med Van Morrison a foninum og kvef i lungunum.

eg missti roddina i gaer
holifokk
en eg lika er ad gefa skit i songinn og dansinn
(sjaum til hversu lengi tad helst)
en vil bara focusera mest a leiklistina
hver segir ad madur turfi ad gera allt trennt?
(humm?? Musical folkid)

Ryan hringdi i mig i gaer til tess ad reka a eftir mer
um leid og eg er buin ad laera ta byrjum vid ad focusera a Companyid
tad verdur allavega ad komast i gang i haust.
fleiri leikarar sem hann tekkir eru lika spenntir fyrir hugmyndinni MINNI;)

we'll see..

blabla.. alltaf er eg byrjud a einhverjum plonum og rugli a tessu bloggi.
je minn ad tid skulid enn lesa elsku blomabornin min i haga
(hey tad er sol og bjor i kvold)

og snilld
fraenka Audda var i London i vikunni og baud okkur tvisvar sinnum ut ad borda.
hun fekk sjokk
sendi mommu hans skilabod um ad
"drengurinn vaeri ordinn eins og hipparnir i gamla daga"
bara fyndid
en gaman ja..

aejji krakkar..
eg er ad paela i ad haetta ad bulla
fara ut i solina og finna gard tar sem eg get laert
vildi bara ad eg aetti munnhorpu
(um leid og eg fae sma auka pening.. ta kaupi eg hana)
tid eigid eftir ad sja mig a tanum a Austurvelli spilandi a munnhorpuna mina, dansandi i grasinu.
og tid kastid i mig klinkinu ykkar eda takid tatt i gledinni

heyrumst..
bless
Thelma rokkar

mánudagur, maí 09, 2005

He offered me a cigarette and I accepted 

('couse it has been a long time)

And as it burned to the end..
I thought of the boy no one could ever forget

i dag aetla eg ekki ad stressast yfir neinu
eg aetla ekki ad paela i listinni ad performa
eg aetla ekki ad hugsa ut hvort eg eigi ad taka Masterinn nuna eda ekki
eg aetla ekki ad paela i prufum.
eg aetla ekki ad paela i mer og minum haus.
hjartad ma sla..
eg nenni bara ekki ad paela hvernig.
(This is not about me)

Frekar aetla eg ad hugsa um snillinginn
sem vaknar a hverjum morgni vid hlidana a mer.

Hann er med har eins og fokkin Jim Morrison
og skegg eins og Haraldur a fjollum.
(enda ekki buinn ad klippa sig ne raka i 3 manudi)
Hann rifur sig a faetur kl 7 og hendir ser i gallabuxur og bol,
medan eg geyspa og nudda ur mer stirurnar.
Hann faer ser kaffi med musunum adur en nokkur i husinu er kominn a faetur.
Hann hendir einhverjum "mat" i bakpokann sinn
og stekkur a hjolid sem Luke lanadi honum.
Hann hjolar i gegnum Londonborg i amk klukkustund i vinnuna til tess ad safna pening handa minni mattar i 22 fataekustu londum i heiminum.
Hann bordar svo kannski hnetur eda eitthvad braud sem hann "fekk lanad" fra medleigendum, i hadegismatinn
Klukkan 6 hjolar hann svo aftur heim, i gegnum aesinginn og kreisinessid.
Og knusar svo messid sitt sem tekur a moti honum.
Hann dilar svo vid hjartslattinn minn og over analaesingar fyrir svefninn.
Minnir a betri tima framundan og segir "fardu ad sofa i kollinn tinn!!!"
Hann truir a haefileika mina tegar eg dett i vonleysis eda hraedsluham
og roar mig utaf prufum og ahyggjum.

Hvernig er haegt ad vera svona bjartsynn eftir erfidann dag??
Eftir ad hafa hitt fullt af folki sem truir ekki a ad heimurinn getir breyst.
Sem truir ekki ad poverty geti ordid history ef folk bara hugsar ut fyrir sinn litla lokada orugga heim og er tilbuid til ad sleppa einum bjor til ad bjarga mannslifi.

Madurinn sem afsannadi kenninguna mina um menn
(eg er ad paela i ad sleppa tvi ad segja hvernig hun var. hun var soltid shallow)
er a leidinni heim.

og eg er med Emelionu Torrini a foninum (mer finnst hun mognud)
ad klara ad gera rigerd um contemporary Musicals
(ups eg aetladi ekki ad tala um tad)

Eg bara vildi ad tad vaeru ekki mys i eldhusinu
(Leo aetlar ad reyna ad drepa taer i kvold..tad gengur eitthvad erfidlega)

eg vildi ad eg gaeti tekid manninn minn a rolegri stad,
og keypt fullt af mat handa honum.
(eg hlakka til ad geta tekid fallega manninn minn a einhvern fallegri stad)
eg vildi ad tad vaeru fleiri litir i kringum okkur
eg vildi ad vid gaetum farid saman i nuddpott i kvold
og setid upp a fjalli med vidattu og ferskt loft
(hvernig er aftur vidatta??)

..once in a house on a hill was a boy..
eg aetla ad klara tad sem eg tarf ad gera
og undirbua svo eitthvad magnad handa hippakrakkanum minum.

fokk hvad tad er magnad ad vera bara vaeminn
og tala ekki um sjalfan sig a tessu blessada bloggi for once
aaahhh...

jaeja nu jaeja...
tad voru sem sagt bara Rosa, Sara og Eva sem skildu hvad eg atti vid med "silence can be misleading"
okei ta..
taer fa verdlaun fra London

en blabla..
farid vel med ykkur krakkar minir
og profid ad nudda einhvern i svefn i kvold
it's an order!!!
Thelma rokkar

miðvikudagur, maí 04, 2005

Too much silence can be misleading 

.
vaknadi klukkan 8
eins og oftast

byrjadi ad setja nidur einhver ord um contemporary theatre a blad adur en eg nuddadi stirurnar ur augunum.
(mer lidur eins og eg se i profum)
stress??
Audunn fekk ser kaffi.. eda te??
eg sat i ruminu og byrjadi ad gera pilates medan eg for med texta sem eg er ad leggja a minnid fyrir prufu
utihurdin opnadist og lokadist hvad a eftir odru
allir a leidinni i vinnuna
folkid a heimilinu vinna oll annad hvort hja "Concern worldvide" eda fyrir "friends of the earth"
svona greenpeacedaemi

eg bara analysa Queene og Kate
bjarga engum med tvi I guess
en eg hlyt ad gera einhverjum gott a endanum.. ef eg fylgi hjartanu.
eg vona tad
(vid breytum heiminum a mismunandi hatt.. I guess)

Audunn lagdi snemma a stad i vinnuna tvi hann for hjolandi
(sparnadur)
eg setti ginger uti vatnid mitt og bjo um rumid.
gratt uti
sem er agaett ef eg aetla ad vera eigingjorn
(er ekki pirrandi ad laera med solina innum gluggann??!!)
tok tannbursta og handklaedi, hoppadi i sko (buum vid i tjaldi??)
og for inn a bad
rak kallinn sem er ad laga badherbergid ut medan eg tvodi mer i framan.
for upp a adra haed (allir farnir nema kallar sem eru ad laga gluggana)
sagdi teim ad ef teir aetla ad laga gluggana i minu herbergi ta verda teir ad gera tad nuna tvi eg er ad fara ut i 2 klst og tegar eg kem til baka ta tarf eg ad hafa herbergid tvi eg er ad laera.
teir sogdu ja og amen vid litlu ljoshaerdu stelpuna
og eg henti mer ut i grau Londonborg

kom heim
strakarnir bunir ad gera sitt og haleluja eg gat byrjad ad taka songupphitunina.
Luke var heima, buin ad laga svona lika til
(wow!! eg sa hann i odru ljosi.. tetta kann hann?)
hann benti mer ad eg hafi fengid pakka i postinum
o ja!!
eg var einmitt ad vonast til ad hann kaemi i dag.
henti i tvott
og byrjadi svo a ad gera "the working progress of contemporary musical song"
fekk mer epli
klukkan ordin 12!!
fokk
verd ad fara semja fyrir performance making programmid sem eg fer kannski i.
stress??
klukkan ordin 14
fokk
best ad fara a netid og tekka a postinum, pikka inn tad sem eg tarf ad pikka inn og ljosrita the musicsheets (og jafnvel segja hae a blogginu...hae)

nuna er best ad drifa sig heim til ad studera "Aesop's Fables"
og jafnvel fa mer muffin og te
..going going gone..

(eg sagdi: too much silence can be misleading!!)
Thelma rokkar

þriðjudagur, maí 03, 2005

When your mind is a mess 

So is mine

I can't sleep Cause it hurts when I think.
My thoughts aren't at peace
with the plans that we make
chances we take

je minn..
sum log voru bara samin fyrir mann!!
tad er agaett sossum

en helgin segidi..
laugardagurinn var aedi
lekum okkur i solinni i Notting hill og a Portobello Road

svo var sunnudagurinn fataekur og rolegur.

vid erum samt ordin treytt a ad bua i houseshare
eg held ad Islendingar troskast bara a undan odrum
eg get svo svarid tad.
hvad er madur ad bua i kommunu 25 ara gamall?
en svo uppgotvadi eg ad tetta lid sem vid buum med er allt upp i 31 ars!!
og mer finnst varla lida nott an tess ad madur vaknar vid ad einhver se ad staulast inn blindfullur a virkum degi.
magnad:/
men hvad eg er gomul sal i dag...
en eg meina mer finnst gaman ad djamma og vera kaerulaus..
en eg se engann tilgang i tvi ef eg geri EKKERT ANNAD
but maybe thats just me.

nei svo for eg ad spa..
allir vinir minir a islandi kunna alveg ad sleppa ser a laugardagskvoldi,
EN eru lika ad gera fullt annad,
stefna a eitthvad og allt tad..
sumir byrjadir ad koma ser upp bui, eru i nami, eda komnir i framavinnuna,
komnir med born, eru ad fara ad gifta sig,
bara allur gangur a tessu.
og svoleidis huxum vid Audunn tetta lika
af hverju ad skala tegar madur hefur ekkert til ad skala fyrir?

ja eg er ekki fra tvi ad Islendingar seu troskadari en margir sem eg hef kynnst i New York eda i London.
eg sakna Islands allt i einu
er bara ordin treytt
i sumar eru komin 3 ar sidan eg flutti ut
men hvad mig langar i heimilismat............

en allavega..
annars tarf eg bara ad aefa 2 log og 2 monologa i dag
er ad hugsa um ad fara bara ut i einhvern gard og syngja og leika tar.
folk ma halda ad eg se gedveik
(fae kannski eitthvad klink i hattinn;)
nei tad er bara svo gott vedur

allavega
farid nu ad heilsa upp a mig herna i kommentin
eg bid ekki um meira

vid Audunn vorum reyndar ad tala um hvad vid eigum eftir ad meta marga "sjalfsagda" hluti eftir tetta,
bara svona ad komast i sturtu hvenaer sem er og geta sofid a naeturnar og bordad i flest mal
aaahhh... luxus

en tetta er bara timaspurgsmal
holdum uppi gledinni og ekkert vael
verid afram dugleg krakkar minir
laera, vinna, thrifa
og svo njota inn a milli............
Thelma rokkar

This page is powered by Blogger. Isn't yours?